Friday, November 30, 2012

Að pakka


Þá er komið að því. Við erum á fullu í að pakka. Það hefur bara gengið vel hingað til.


Fyrstu kassarnir eru farnir að hlaðast upp. 



Menn eru orðnir spenntir fyrir flutningum.



Hann var ánægðari en fíll í leirbaði með þessa ferðatösku!


Saturday, November 24, 2012

Af flutningum og öðrum breytingum

Það verða engar myndir núna, hef ekki haft tíma eða nennu í að taka neinar myndir síðustu daga. Það eru samt miklar fréttir frá okkar heimili. Síðustu mánuði höfum við verið með íbúðina á sölu. Það gekk hálf brösulega að selja þrátt fyrir mikinn áhuga.

Við vorum búin að gefa upp vonina og búin að finna leigjanda. Tveimur dögum síðar selst íbúðin. Gleðin var þvílík! Okkur fannst hins vegar verra að bregðast verðandi leigjandanum. En hún sýndi stöðu okkar skilning.

Það hefur því allt gengið upp og nú er hér um bil allt frágengið fyrir flutninga til Noregs. Ég á bara eftir að.... gera allt hitt. Næstu vikur munu einkennast af kössum, bylgjupappa, pirringi, bóluplasti, þreytu, flutingingum fram og aftur og ég veit ekki hvað.

Afhendingardagur íbúðarinnar verður um miðjan desember. Ég og strákarnir förum hins vegar ekki út fyrr en í lok desember og við munum því þurfa að búa í sveitinni í nokkurn tíma.


Tuesday, November 6, 2012

Einu sinni...


...var ég á Indlandi. Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að aðlagast þá sakna ég landsins alveg ótrúlega. Frelsið, hitinn, fólkið, maturinn, lyktin. 

Næst þegar ég fer ætla ég að njóta þess í botn.






Saturday, November 3, 2012

Innidagur


Það var ekkert skemmtilegt veður í dag. Þá verður maður að finna sér eitthvað að gera. Theodóri finnst skemmtilegast að kubba og svo heppilega vill til að pabba hans finnst það alls ekki leiðilegt heldur. 

Þeir feðgar gera yfirleitt eitthvað stórkostlegt.

Þá er líka hægt að föndra, baka, mála, leira, lesa, púsla... 

Við gáfumst samt upp á inniverunni á endanum. Fórum útí kuldann og kíktum á róló, enda var vonda veðrið farið.




Wednesday, October 31, 2012

Eftir frostregn


Við skruppum í sumarbústað síðustu helgi. Lentum í frostregni á leiðinni. Ferðin tók okkur þrjá tíma en hefði í raun bara átt að taka einn og hálfan tíma. 

Það var samt alveg þess virði. Morguninn eftir var gullfallegur, þíða en ekki allt frostið farið af trjánum og grasi.

Ég og Theodór fórum í ljósmyndaleiðangur.






















Monday, October 22, 2012

Hrím



Við eyddum helginni í sveitinni. Það er alltaf svo gott að geta aðeins slappað af þótt það sé ekki nema í nokkara mínútur. 

Þegar maður er tilneyddur til að vakna klukkan sex alla morgna er eins gott að finna eitthvað jákvætt við það. Ég fann út að það er alveg stórkostlega birta svona snemma á morgnana. Þurfti reyndar að bíða í fjóra tíma eftir því að hafa næga birtu til að taka myndir, en það var alveg þess virði. Náði sólarupprásinni í Hvalfirðinum. 

Jafnvel hálfdauðar plöntur verða fallegar í hrími.




















Monday, October 15, 2012

Heimsókn á Vesturbergið




Ég og strákarnir skruppum á Vesturbergið eftir leikskóla í dag. Ég kippti myndavélinni með þar sem birtan var svo falleg í síðdegissólinni. Það er svo ekki verra að garðurinn hjá tengdó er alveg gullfallegur. 





Wednesday, September 19, 2012

Haustið er komið!


Í morgun fékk ég mér labbitúr. Labbaði með Tedda í leikskólann, tók Nikka með í vagninum og myndavélina um hálsinn. 

Ég er nú ekki þekkt fyrir að nenna að fara í labbitúra fyrir klukkan níu á morgnana, en nokkrum dögum áður hafði ég séð svo fallega liti á einum runna stutt frá. Ég gat bara ekki stillt mig um að reyna að ná mynd af honum í morgunsólinni.

Það lítur bara allt vel út í morgunsólinni.


Wednesday, August 29, 2012

Þrjú kerti


Við héldum upp á afmæli í dag. Theodór fékk þrjú kerti á kökuna sína. Kakan var gómsætt hnossgæti. Frönsk súkkulaðikaka með jarðaberjum.





Hver vill ekki borða þetta?



Theodóri fannst hún alveg rosalega góð!



Sunday, August 12, 2012

Nikulás


Það var árleg stelpuhelgi hjá mér þessa helgina. Við höfðum ákveðið að hafa hana á Kalastöðum. Leigðum okkur sumarbústað niðri í túni.

Halldór var með strákana skammt frá. Nikulás átti að fá pela. Það fór ekki betur en svo að það kom í ljós að Nikulás litli er með svakalegt ofnmæmi fyrir formúlumjólk. Hann endaði á barnaspítalanum, enda allur bólginn og sárþjáður. 

Sem betur fer endaði allt vel og þetta atvik útskýrir allt sem hefur verið að síðustu mánuði. 

Hann er mjög hress í dag.


Í Reykjavík


Theodór var í gistingu hjá Ömmu Birnu og Afa Gísla. Við hjónin ásamt hinu afkvæminu ákváðum að nýta okkur fengið frelsi með því að fara í labbitúr um miðbæinn. Kíkja á Hörpu og bara njóta lífsins.


Það er eitthvað við symmetríu sem ég bara elska.



Harpa er virkilega flott hús.






Þessi bauð gangandi vegfarendum upp  á diddgjerídú úr PVC rörum. Frumlegur.



Blómin við Ráðhús Reykjavíkur voru gullfalleg.

Tuesday, July 31, 2012

Á Árbæjarsafninu


Á góðum sumardegi er ómögulegt að hanga inni. Við ákváðum að skella okkur í smá ferð.

Árbæjarsafnið er alveg stórskemmtilegt. Ég held að ég hafi aldrei skoðað það eins vel og ég gerði í dag. Nikulás náði að sofa mest allan tímann og Theodór hafði bara nokkuð mikinn áhuga á þessu öllu saman, svona miðað við að vera bara næstum þriggja ára. 









Friday, July 27, 2012

Frá Djúpuvík


Síðustu helgi eyddum við norður á Ströndum. Ættarmót í Trékyllisvík. Við skemmtum okkur vel þrátt fyrir að Nikulás hafi látið svolítið illa. Það var ansi kalt en við fengum pláss inni í Finnbogastaðaskóla, svo við höfðum það gott. Vorkenndum hins vegar þessum greyjum sem hírðust í tjaldi í kuldanum. 

Ég tók þessar myndir í Djúpuvík á leiðinni norður. 












Thursday, July 19, 2012

Stórafmæli


Mér finnst það ansi súrrealískt að vera orðin tuttugu og fimm ára gömul. En það er engu að síður raunveruleikinn. Til hamingju með það, ég sjálf.

Tók þessar myndir fyrir nokkrum árum. Ekki á afmælisdaginn minn reyndar, en hefur alltaf þótt þær svolítið flottar. Alltaf langað að sýna öðrum þær. 

Læt það eftir mér í dag.









Tuesday, July 10, 2012

Í útilegu


Við byrjuðum júlí með trompi. Skelltum okkur í Skaftafell og kíktum á Jökulsárlón. Það var ansi kalt, en þolanlegt. 

Það var ótrúlegt að keyra þessa leið. Þrátt fyrir að hafa farið hana nokkuð oft þá held ég að ég hafi aldrei horft út um gluggann. Alla vega kunni ég núna fyrst að meta landslagið og virkilega naut þess. 

Jökulsárlón var stórkostlegt, næstum töfrum líkast. Við skemmtum okkur öll mjög vel. 


Foss á Síðu









Við Dyrhólahey



Theodór í siglingunni um Jökulsárlón















Útilegustrákar

Sunday, June 24, 2012

Í sveitinni


Við eigum okkur gott athvarf í sveitinni hjá mömmu og pabba. Það er alltaf gott að fara þangað. Þar fyrir utan er svo fáránlega fallegt í Hvalfirðinum. 

Við skruppum um helgina. Ég ákvað að það væri kominn tími til að fara í almennilegan ljósmyndaleiðangur. Leiðangurinn varð tveggja tíma labb. Ég kom draghölt til baka, bæði með hælsæri og helaumt bak. 

En það var alveg þess virði.

Mamma og Theodór bökuðu svo handa okkur súkkulaðiköku. Það gerist ekki betra.