Nú er sumarið loksins komið til okkar. Ég fagna hlýjum (og sumum mishlýjum) sólardögum með skógargöngum og blómapælingum. Það er nefnilega svo miklu auðveldara að rækta og sjá um blóm þegar þeim er ekki blásið burt. Ég hef ekki tölu á því hve oft ég þurfti að sækja blómakörin hennar mömmu niður í tún í gamla daga, plokka upp stjúpurnar á leiðinni og reyna eftir bestu getu að planta þeim upp á nýtt. Nei, ég sakna ekkert mjög mikið sjávarandvarans á Íslandi.
Ég sakna aftur á móti fjölskyldunnar og því var það velkomin viðbót við heimilið þegar móðir og bróðir komu í annasömum apríl. Að sjálfsögðu var borðað mikið og vel alla daga, nokkrum kílóum bætt á sig (hver væri annars tilgangurinn með líkamsrækt?) og dagarnir liðu hratt.
Hápunkturinn var ef til vill tveggja ára afmæli Litla Vargs. Já, sá litli er orðinn tveggja ára gamall. Við fögnuðum áfanganum viku fyrir raunverulegan afmælisdag svo móðir og bróðir gætu fagnað með okkur. Einnig var nokkrum velvöldum gestum boðið, svo að allar kökurnar yrði ekki bara étnar af þeim sem þegar höfðu borðað of mikið yfir páskana.
Himnarnir brostu við okkur á veisludeginum. Hitinn og góðviðrið fór fram úr bestu vonum og þetta árið var engin skítalykt af túnunum í kring. Dagurinn var góður. Allur apríl var góður. Við kvöddum svo móður og bróður tveimur dögum síðar og þau komust heim, þrátt fyrir smá misskilning við flugfélagið.
Hér eru svo nokkrar myndir af afmælisbarninu!
Flottur með sólgleraugu af frænku sinni.
Kveikt á kertum!
Kakan var gul sem sólin og græn sem vorið.
Útblásturinn tókst með endemum vel. Tók bæði kertin í einu.
Var þó ansi skelkaður á klappinu sem fylgdi eftir.
Og ein af bróður sem kunni vel að meta grænar súkkulaðimuffur.