Friday, November 30, 2012

Að pakka


Þá er komið að því. Við erum á fullu í að pakka. Það hefur bara gengið vel hingað til.


Fyrstu kassarnir eru farnir að hlaðast upp. 



Menn eru orðnir spenntir fyrir flutningum.



Hann var ánægðari en fíll í leirbaði með þessa ferðatösku!


Saturday, November 24, 2012

Af flutningum og öðrum breytingum

Það verða engar myndir núna, hef ekki haft tíma eða nennu í að taka neinar myndir síðustu daga. Það eru samt miklar fréttir frá okkar heimili. Síðustu mánuði höfum við verið með íbúðina á sölu. Það gekk hálf brösulega að selja þrátt fyrir mikinn áhuga.

Við vorum búin að gefa upp vonina og búin að finna leigjanda. Tveimur dögum síðar selst íbúðin. Gleðin var þvílík! Okkur fannst hins vegar verra að bregðast verðandi leigjandanum. En hún sýndi stöðu okkar skilning.

Það hefur því allt gengið upp og nú er hér um bil allt frágengið fyrir flutninga til Noregs. Ég á bara eftir að.... gera allt hitt. Næstu vikur munu einkennast af kössum, bylgjupappa, pirringi, bóluplasti, þreytu, flutingingum fram og aftur og ég veit ekki hvað.

Afhendingardagur íbúðarinnar verður um miðjan desember. Ég og strákarnir förum hins vegar ekki út fyrr en í lok desember og við munum því þurfa að búa í sveitinni í nokkurn tíma.


Tuesday, November 6, 2012

Einu sinni...


...var ég á Indlandi. Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að aðlagast þá sakna ég landsins alveg ótrúlega. Frelsið, hitinn, fólkið, maturinn, lyktin. 

Næst þegar ég fer ætla ég að njóta þess í botn.






Saturday, November 3, 2012

Innidagur


Það var ekkert skemmtilegt veður í dag. Þá verður maður að finna sér eitthvað að gera. Theodóri finnst skemmtilegast að kubba og svo heppilega vill til að pabba hans finnst það alls ekki leiðilegt heldur. 

Þeir feðgar gera yfirleitt eitthvað stórkostlegt.

Þá er líka hægt að föndra, baka, mála, leira, lesa, púsla... 

Við gáfumst samt upp á inniverunni á endanum. Fórum útí kuldann og kíktum á róló, enda var vonda veðrið farið.