Tuesday, July 31, 2012

Á Árbæjarsafninu


Á góðum sumardegi er ómögulegt að hanga inni. Við ákváðum að skella okkur í smá ferð.

Árbæjarsafnið er alveg stórskemmtilegt. Ég held að ég hafi aldrei skoðað það eins vel og ég gerði í dag. Nikulás náði að sofa mest allan tímann og Theodór hafði bara nokkuð mikinn áhuga á þessu öllu saman, svona miðað við að vera bara næstum þriggja ára. 









Friday, July 27, 2012

Frá Djúpuvík


Síðustu helgi eyddum við norður á Ströndum. Ættarmót í Trékyllisvík. Við skemmtum okkur vel þrátt fyrir að Nikulás hafi látið svolítið illa. Það var ansi kalt en við fengum pláss inni í Finnbogastaðaskóla, svo við höfðum það gott. Vorkenndum hins vegar þessum greyjum sem hírðust í tjaldi í kuldanum. 

Ég tók þessar myndir í Djúpuvík á leiðinni norður. 












Thursday, July 19, 2012

Stórafmæli


Mér finnst það ansi súrrealískt að vera orðin tuttugu og fimm ára gömul. En það er engu að síður raunveruleikinn. Til hamingju með það, ég sjálf.

Tók þessar myndir fyrir nokkrum árum. Ekki á afmælisdaginn minn reyndar, en hefur alltaf þótt þær svolítið flottar. Alltaf langað að sýna öðrum þær. 

Læt það eftir mér í dag.









Tuesday, July 10, 2012

Í útilegu


Við byrjuðum júlí með trompi. Skelltum okkur í Skaftafell og kíktum á Jökulsárlón. Það var ansi kalt, en þolanlegt. 

Það var ótrúlegt að keyra þessa leið. Þrátt fyrir að hafa farið hana nokkuð oft þá held ég að ég hafi aldrei horft út um gluggann. Alla vega kunni ég núna fyrst að meta landslagið og virkilega naut þess. 

Jökulsárlón var stórkostlegt, næstum töfrum líkast. Við skemmtum okkur öll mjög vel. 


Foss á Síðu









Við Dyrhólahey



Theodór í siglingunni um Jökulsárlón















Útilegustrákar