Friday, August 22, 2014

Ævintýrið sem leið.



Nú leið undir lok ferðalagsins okkar. Þó áttum við eftir að taka þátt í veislunni sjálfri sem var daginn eftir slysið.  Um þúsund manns var boðið, úr öllum stéttum samfélagsins, en "aðeins" 650 mættu. Það var mikið borðað í veislunni, hlegið, horft á fólk dansa, borðað meira, spjallað smá og þar fram eftir götum. Frændur, frænkur, vinir og félagar voru öll búin að frétta af hrakförum fyrri kvölds og var það aðal umræðuefnið. Við skemmtum okkur ágætlega.

Nú voru tveir dagar eftir af dvöl okkar í þessu landi ævintýranna og við vorum ekki enn búin að sjá Himalayafjöllin. Það var hugsanlegur möguleiki á að við gætum náð smá sneið af fjöllunum. Okkur var boðið af gestgjöfum okkar í hótelgistingu í Nagarkot á hóteli sem heitir því stórkostlega nafni Hotel Space Montain.

Við vorum fegin að fá nokkra tíma með nýgiftu brúðhjónunum, sem ákváðu að koma með okkur. Til að sjá sólarupprásina yfir Himalayafjöllum þurftum við að vakna rétt eftir klukkan fimm um morguninn. Við stilltum því samviskusamlega vekjaraklukkuna til að sjá dýrðina.

Klukkan fimm um morguninn vöknuðum við, kíktum út um gluggann, sáum rigningu og þoku. Ekki vottur af sól! Þannig að við fórum aftur að sofa. Næst förum við til Nepal í október, þá er ekki monsún tímabil og meiri líkur á að sjá Himalayafjöllin. 

Síðasta deginum eyddum við í rölt um Bhaktapur. Kathmandu samanstendur af þremur borgríkjum, Bhaktapur, Kathmandu og Lalitpur. Bhaktapur var ein af stærstu borgunum áður en þessi þrjú borgríki voru sameinuð. Við skemmtum okkur í leiðsögn um svæðið, keyptum minjagripi og fengum gefins minjagripi.


 Nýgift hjónin.


 Fínar höggmyndir hvert sem litið var.


 Vörður ver heimsminjarnar.


Kinverkur túristi við turn.

Þegar aftur var komið í húsið var farið að líða að kvöldi. Við notuðum síðustu tímana í að pakka, stressuð yfir að allt sem við höfðum keypt myndi ekki komast og blótandi því að hafa ekki tekið fötin, sem eiga við loftslagið á Íslandi, upp úr ferðatöskunni. Með smá stappi, bölvi, ragni og troðslu tókst okkur þrekvirkið að pakka í töskunar. Og engin þeirra var í yfirvigt!

Heimferðin var jafn löng og ferðin út. Eftir þúsund og eitt öryggistékk á Kathmandu flugvelli og sex hundruð önnur í Delhi vorum við loksins á leiðinni til London. Tveggja tíma seinkun á flugvellinum í Delhi. Flugvélinn virkaði ekki rétt, það var ekki fyrr en þeir slökktu á henni og kveiktu á henni aftur sem allt gekk eins og það átti að gera. Ég og ferðafélaginn hlógum innra með okkur og sáum fyrir okkur samtal flugmannanna við Tech support: "Have you tried turning it off and on again?" Þeir sem hafa séð IT Crowd fatta brandarann.

Við vorum því í tíu tíma sitjandi í sömu flugvélinni og þeir sem segja að það sé ekki þrekvirki hafa ekki prófað það sjálfir! Horfði á þrjár bíómyndir, og reyndi að fyllast ekki af örvæntingu yfir því hvað mínuturnar, sekúndurnar, liðu hægt.

Á Heathrow hlupum við í gegnum flugvöllinn, hrædd um að missa að flugvélinni sem myndi flytja okkur í fang okkar heittelskuðu drengja. Ekkert stress þó, náðum vélinni og vel það. Frá rúmi til rúms tók ferðalagið okkur um sólarhring. 

Það var skrýtið að koma aftur í hversdaginn eftir ævintýrið, en mikið var ég glöð að fá að dýrka drengina mína aftur.

Nú sakna ég Nepal. Ég hlakka ótrúlega til að fara þangað aftur, finna lyktina, tala við fólkið, fá nýtt mangó og borða matinn. Þangað  til verð ég bara að borða matinn sem er búinn til hér á vesturlöndum. Fyrir ykkur sem búið á Íslandi er hægt að fá æðislegan nepalskan mat á veitingastaðnum Kitchen Eldhús á Laugarvegi 60. Mæli með því að þið prófið það!

Monday, August 11, 2014

Frá veislusal á klósettgólf.



Tímin hélt áfram að líða í ævintýri okkar hjóna. Daginn eftir ævintýrið á ánni fengum við leiðsögumann um markaðsgöturnar í Kathmandu, Thamel. Leiðsögumaðurinn var félagi Prabhu, virkilega afslappaður gaur sem rekur netkaffi í miðborginni. Hann hafði samt ekkert betra að gera en að lóðsa okkur um og prútta fyrir okkur á hinum ýmsu stöðum. Við gerðum góð kaup. 

Á meðan við eyddum pening stóð undirbúningurinn fyrir næsta brúðkaup í hámarki, enda brúðkaupsvíglsa Prabhu og Shanti daginn eftir.

Athöfn í garðinum daginn fyrir brúðkaupið.

Brúkaupsdagurinn rann upp. Það var sama stress (hjá okkur) og síðast, klæða sig fyrir klukkan sjö, vera komin á réttan stað fyrir klukkan átta. Það átti samt allt eftir að teygjast og togast vegna Nepali-time. Það er notaður sá tími sem þarf í hlutina, óþarfi að stressa sig yfir þessu öllu saman. Ég leit þó skikkanlega út að þessu sinni, var klædd í rauðan sarí og meira að segja sagt hvernig ég ætti að mála mig. Ég lét þetta allt yfir mig ganga.

Brúðkaupsathöfnin tók átta tíma. Ólíkt vestrænum brúkaupum sitja gestir ekki fastir, það er leyfilegt að ganga um veislusalinn, borða, spjalla og kíkja af og til á brúðhjónin. Við skemmtum okkur vel við að skapa ný sambönd og spjalla við hina ýmsu gesti, sem voru mjög fjölbreyttur hópur.

Shanti og Prabhu í athöfninni.

Ég get þó ekki neitað því að eftir allt þetta allt saman var ég dauðþreytt og hlakkaði til að eiga rólegan dag daginn eftir.

Það gekk að mestu leiti eftir. Við fórum ekki á stjá fyrr en eftir hádegi (rosalega er maður fljótur að fara að geta sofið fram eftir aftur!) og þá aðeins til að borða og spjalla við hin nýgiftu. Þar sem við höfðum lítið séð af gestgjafa okkar hingað til, vegna anna hans, bauð hann okkur með í bíltúr um Kathmandu. Litum við á kaffihúsi, á markaði og kíktum á góðan útsýnispunkt sem sýndi okkur alla borgina.

 Markaðurinn á Durbar torgi.

Kathmandu.


Prabhu, Shanti og ég.

Um kvöldmatarleitið vorum við komin aftur í hús og borðuðum meira, spjölluðum enn meira og hlógum ennþá meira. Drógum okkur svo í hlé og hugðum á svefn í hundgá, umferðarniði, bílflauti og stöku hrópi frá einhverjum í nágrenninu.

Ekki fór það betur en svo en að ektamaður minn kæri rann á baðinu við tannburstun og opnaði pent á sér hnéð. Við sjónina sem blasti við mér þegar ég sá svöðusárið á hnénu var mér að sjálfsögðu mjög brugðið, sérstaklega þegar ég gerði mér grein fyrir hve stutt hafði verið í að hann hefði rotað sig á postulínssætinu (klósettinu). Ég gat þó ekki annað en hlegið eins og vitleysingur og ber ég við tímabundnu brjálæði og sjokki.

Við vorum nú í örlítilli klemmu. Okkur þótti augljóst að sauma þyrfti slysið, þar sem það frussaði blóði statt og stöðugt og var að auki svo djúpt að við þóttust sjá glitta í hvíta hnéskelina fyrir innan. Vandamálið var að við vorum svo til hjálparlaus. Íbúðin okkar var aðskilin frá aðalhúsinu þar sem læknirinn (hinn nýinnvígði mágur Prabhu) svaf. Á milli okkar stóð illskeyttur lögregluvarðhundur (aka Crazy-Dog) sem var hleypt út þegar menn voru gengnir til rekkju sinnar.

Með smá hrópum og köllum, símtölum sem ekki var svarað og nokkrum örvæntingafullum sms-um tókst okkur að ná sambandi við umheiminn. Crazy-Dog var haldið í skefjum á meðan eiginmaðurinn haltraði yfir í húsið, með mig áhyggju-flissandi á eftir sér.

Úrskurður læknisins var sá sami og okkar, sauma þyrfti skurðinn. Öllu heilli eru apótek í Nepal mörg opin langt fram eftir nóttu og þar er hægt að kaupa allt sem hugurinn girnist. Splæst var í nál og tvinna, sótthreinsi og sárabindi. Halldór fékk viskí sem deyfingu og blikkaði ekki auga á meðan nálinni var troðið með miklum erfiðleikum í þykka húðina á hnénu.

Allt er gott sem endar vel. Til öryggis var fórnarlambið sett á sýklalyf daginn eftir og einnig fékk hann stífkrampasprautu.

Monday, August 4, 2014

Ævintýrið á ánni.



Fyrsta daginn okkar í Nepal skriðum við fram úr beddanum okkar um sex leitið, höfðum fengið strangar leiðbeiningar að vera tilbúin fyrir brúðkaup klukkan sjö um morgunin (lærðum svo seinna á Nepali-time: Gerðu ráð fyrir klukkutíma seinkun). Halldór var jakkafatalaus, sem betur fer var hann vaxinn eins og Prabhu og gat því fengið lánuð föt þaðan. Ég gerði mitt besta með það sem ég hafði á milli handanna, snyrtiveskin okkar voru bæði í töskunni sem ekki kom. Ég þótti ekki nógu fín samt sem sem áður, en ég gat lifað með því. 


Prabhu og  Halldór í fyrsta brúðkaupinu.

Í brúðkaupinu, sem átti eftir að taka um átta tíma, fór ég að finna til veikinda. Við urðum að fara snemma heim... Ferðalag sólarhringsins áður hafði einfaldlega verið of mikið! Við voru út úr heiminum í fimm tíma. Fréttum svo að taskan væri komin á flugvöllinn þegar við komumst til meðvitundar aftur, okkur til mikillar gleði!


Skreyttur flutningabíll.

Fyrsta almennilega deginum okkar í Kathmandu eyddum við í að skoða hin ýmsu musteri, hindúa og búddista. Fengum til þess okkar eigin bílstjóra. Fíluðum okkur eins og kóngafólk.


Búddamusteri.

Fjórða daginn vöknuðum við seint eins og alla daga, nutum þess að dunda okkur við að hafa okkur til, með áætlanir um rölt um markaðinn. Ó, hve rangt við höfðum fyrir okkur!

Í hádegismatnum er okkur sagt að við værum að fara í rafting, gista í tjaldi og koma heim aftur á morgun. Full vantrúar hló ég. En, nei, þetta var alveg satt og rétt. Í kvíða mínum og óöryggi sá ég fyrir mér hvernig líki mínu myndi skolast upp á strönd Indlands frá Bengalflóa, líkamshlutar týndir á leiðinni. Eða hvernig alls óþekktar pöddur myndu éta mig lifandi í frumskógi í Nepal! Eða hvernig rútan myndi keyra út af snarbröttum veginum og steypast niður í skóginn og lík okkar yrðu étin af öpum! Drengirnir okkar yrðu foreldralausir!

Þrátt fyrir ímyndunarveikina og stressið í mér létum við slag standa og vorum komin inn í Tata rútu sem myndi taka okkur í þriggja tíma ferðalag eftir kræklóttum vegum, sem minntu óneitanlega á norsku einbreiðu kræklóttu vegina. Það vantaði bara öryggishandriðið. Sama Tata rúta átti eftir að hækka í áliti hjá mér þegar ég sá hana fullhlaðna með fjórum gúmmíbátum, þremur kajökum, árum og svo leiðsögumennirnir á toppnum líka.


 Hin mjög svo traustvekjandi rúta sem tók okkur til Sukute Beach resort.

Við ferðuðumst framhjá hrísgrjónaekrum í fjöllum, snarbröttum hlíðum, aldrei hljóðum skóginum og mörgum litlum þorpum. Hvar sem við komum, sáum eða stoppuðum var fólk. Alls staðar var hægt að sjá föður eða móður með börn og ég saknaði minna.

Þegar við komumst loks á áfangastað lifnaði yfir okkur. Þetta var alls ekki eins slæmt og við höfðum búist við, í raun og veru var þetta bara mjög indælt. Það var meira að segja alvöru klósett á svæðinu! Það var orðið mælieining á þægindi.

Túristinn og tjaldið.

Okkur var ekki leyft að borga fyrir einn einasta hlut, nema lítersflöskur af bjór og aðra drykki. (Staðurinn var í eigu eins frændans.)Við nutum þess að vera til, sátum á barnum um kvöldið, spjölluðum við fólk og borðuðum æðislegan nepalskan mat. Við hugsuðum með tilhlökkun til ferðarinnar daginn eftir.

Daginn eftir vöknuðum við óhressari. Kannski var það svefnleysi næturinnar, kannski að hluta til bjórinn kvöldið áður. Árniðurinn hafði haldið mér vakandi stóran hluta af nóttinni. Við vorum næstum hætt við ferðina, en hugsuðum sem svo að ef við hresstumst ekki við að hafa adrenalín í æðunum þá værum við dauðvona og gætum því allt eins drepist í rafting eins og einhverstaðar annars staðar.

Vonir okkar voru uppfylltar, adrenalínið hressti okkur við og gott betur! Sérstaklega eftir að okkur var sagt að vegna monsúnrigninga væri vatnsborðið í ánni hátt og því hættulegra að fara í rafting en ella.


Áin háværa.

Bátsferðin sjálf var stórkostlega skemmtileg. Við vorum í báti með nepalskri fjölskyldu sem hló og skrækti alla leiðina niður ána og gáfu ferðinni mikinn lit. Þau voru heldur ekki hrædd við að láta sig vaða í ána, nokkuð sem ég lét mér ekki detta í hug að gera!

Eftir ferðina gerðum við tilraun til að þurrka okkur, sem var hægara sagt en gert vegna rakans í loftinu. Allt er þó hægt ef viljinn er fyrir hendi. Við vorum komin heim til Kathmandu um sex leitið um kvöldið, uppgefin en alsæl.

Saturday, August 2, 2014

Fyrsti hluti ferðalagsins.



Fyrir um það bil ári síðan ákvaðum við fjölskyldan að eyða heilum sumarmánuði á Íslandi. Fyrir um það bil hálfu ári var okkur svo boðið í brúðkaup til Nepal þennan sama sumarmánuð. 

Vissulega skapaði þetta smá vandamál, sem þó var alls ekki óleysanlegt. Því var farið til Íslands á tilætluðum tíma, eytt þar einum sólardegi, drengjunum komið fyrir í sveitinni hjá ömmu og afa og haldið af stað út í nóttina daginn eftir. Tregafull var kveðjustundin þegar við gengum út úr húsinu.

Ég hafði séð fyrir mér hvernig ég og eiginmaðurinn dreyptum á kokteilum klukkan sex um morguninn á Leifsstöð, ég í hælaskóm og snobbdrakt, hlæjandi að samferðamönnum sem voru hlekkjaðir við barnavagna, blautþurrkur og klístraða putta. Skynsemin leyfði þó aðeins sterkan kaffibolla, víðar buxur og þægilegan bol. Þar að auki öfundaði ég pínulítið fólkið með börnin. 

Fyrsta stopp okkar í ferðinni, sem átti eftir að taka um þrjátíu klukkustundir, var í Frankfurt. Uppfull af orku eftir smá hvíld í fluginu héldum við af stað inn í borgina til að eyða þeim níu tímum sem okkur hafði verið útdeilt. Það má kannski segja að við höfum eytt aðeins of mikilli orku í Frankfurt. Við borðuðum, drukkum bjór og gátum loksins notið nýfengins frelsis okkar. 


Við Römerplatz.

Upp úr sex var stefnan tekin á flugvöllinn á ný. Þörf var á hvíld fyrir fæturnar sem höfðu svo sannarlega verið mikið notaðir á plampi okkar um tígulsteinslagðar götur borgarinnar. Við uppgötvuðum okkur til mikils hryllings að á töltinu höfðu fætur okkar fengið á sig mikinn og sterkan daun sem ekki var hægt að hætta inn í stappaða flugvél í sex tíma flugi. Maður gerir bara ekki svoleiðis!. Aðeins annað okkar var með sokkaleista til skiptana og fór því hitt og splæsti í tvö pör. Verra var að annað parið voru nælonsokkar og það passaði illa við kyn samferðamannsins. Hitt parið voru fagurrauðir sokkar, en það par gengdi þó hlutverki sínu mjög vel og við komum í veg fyrir að drepa alla samferðalanga okkar með eiturgasárás.


Við flugum með Etihad til Abu Dhabi.

Næsta stopp í ferðinni var í Abu Dhabi í sameinuðu arabísku furstadæmunum og var það í fyrsta sinn sem ég var staðsett á Arabíuskaga. Hitinn þar var ótrúlegur! Það var eins og að ganga á vegg þegar við komum út úr loftkældri flugvélinni og beint út í 45°C. Ég skildi ekki hvernig fólk gat unnið í þessum hita! Þarna rétt hjá var þó einn Indverji að grafa holu, sem eflaust hafði tilgang, og verkstjórinn hans stóð í skýli og horfði á.

Á þessu stigi ferðalagsins vorum við orðin uppgefin, og þó áttum við enn um tíu tíma eftir! Ráfandi um flughöfnina náðum við þó að fjárfesta í nokkrum minjagripum og gjöfum. Og enn hélt ráfið áfram og einhvernveginn tókst okkur að finna rétta röð fyrir flugvélina til Kathmandu þar sem við vorum flokkuð eins og kindur eftir lit. Hvítir í eina röð og allir hinir í aðra. 

Mikil töf varð á flugvélinni, um tveir tímar, og grínuðumst við með að það væri sennilega verið að leita að okkar töskum, enda löngu búin að sætta okkur við að við myndum ekki getað fengið töskurnar okkar alla leið frá Keflavík til Kathmandu á sama tíma og við. Flugið á milli Abu Dhabi og Kathmandu virtist líða í algjöru móki að mestu leiti, fyrir minn part. Ég komst þó til meðvitundar en uppgötvaði mér til hryllings að enn voru tveir tímar eftir af fluginu. Það leið þó eins og allt gerir á endanum. 

Við lentum svo í Kathmandu um 16:30 að staðartíma. Flugvöllurinn var vinalegur, einfaldur og mjög litill miðað við skrímslavellina sem við höfðum ferðast í gegnum. Í feginleik okkar yfir að vera komin á endastöð sáum við allt í björtu ljósi og fannst meira að segja tollverðir og visagaurar yndislegir. 


Kathmandu.

Grín okkar í Abu Dhabi reyndist rétt. Ég fékk mína tösku en hinn helmingurinn fékk ekkert. Við vorum þó rösk til og fórum og sendum formlega kvörtun, hunskuðumst svo út af vellinum og hittum Prabhu sem beið. 

Ferðalagið tók allt í allt rúmlega 31 tíma. Við vorum svo uppgefin eftr ferðina að okkur svimaði af þreytu. Eins erfitt, þreytandi og leiðinlegt það er að ferðast svona langt, þá verður það alltaf þess virði. Hvað er lífið án ævintýra?

Á heimili Prabhu var undirbúningurinn fyrir brúðkaup morgundagsins í fullum gangi. Daginn eftir átti systir Prabhu að giftast en ég kem að því seinna.