Friday, June 12, 2015

Sakarvottorð sem lengist

Þar sem ég þeysti eftir þjóðveginum, með hugann við að mæta í vinnuna á réttum tíma, stekkur fram fugl úr vegkantinum. Fuglinn var í greinilegum sjálfsmorðshugleiðingum, greyið, því ég sá ekki mikið af honum. Ekki brá fyrir nema löngum goggi, svörtum og hvítum fjöðrum innan um gráar. Og svo auðvitað blóðug rákin sem hann skyldi eftir sig á framrúðunni og neitar að fara, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar til að afmá sönnunargögnin. Rúðuþurrkur og rúðupiss virkaði ekki, ég reyndi á milli þess sem ég þurrkaði tárin úr augunum á mér.

Þetta fugldráp af gáleysi (eða ættum við frekar að kalla það sjálfsmorð fuglsins? Eru ekki slys alltaf á ábyrgð bílstjórans? Fletta upp!) átti sér stað í gær. Í morgun reyndi annar fugl að lengja sakavottorð mitt á þjóðveginum (sem hljóðar upp á nokkrar mýs, einn máv og fórnarlamb gærdagsins). Nú sá ég kauða aftur á móti áður en glæpurinn varð að veruleika og ég gat með ótrúlegum aksturshæfileikum (tiplaði létt á bremsuna) komist hjá árekstri og ég sá í baksýnisspeglinum hvernig fuglvitleysingurinn flaug áfram, óvitandi um hina ómetanlegu lífsgjöf sem ég hafði gefið honum. Fljúg áfram, kæri vin, og hugsaðu til mín með hlýju!

Fuglinn sem þáði lífgjöfina af mér var lóa. Ég gerði mér grein fyrir að fuglinn í gær var lóa. Vorboðinn ljúfi sem ég hef fylgst með á Arnahóli. Blessuð lóan. Lóan er komin og allt það. Lóa. Er vorið (því ég neita að kalla ástandið úti sumar) svo kalt að lóan sjái ekki annan kost en að fleygja sér fyrir bíl? Mér finnst nú illa komið fyrir lóunni ef hún missir vonina út af smá vorhreti Hvað eigum við mennirnir þá að hugsa? Ég vona að að  það sé ekki eins farið hjá öðrum farfuglum landsins. Að ég tali nú ekki um vetursetufuglana, þá sem þurftu að þreyja hinn kalda, vindasama og snjóþunga vetur.


Nei, tökum íslensku sumri fagnandi! Finnum föðurlandið, ullarpeysuna, gítarinn, kæliboxið (nei djók, það er nóg að láta mjólkina standa úti!), svefnpokann, tjaldið og vindsængina og skellum okkur í útilegu á 17. júní. 12 gráður í sól þótti lúxus þegar mamma var ung! Vindkælingin virkar svo alveg stórvel á brunann ef við brennum í hinni blússandi sól. Njótum sumarsins og klæðum okkur eftir veðri og missum ekki gleðina. Við höfum alltaf miðnætursólina.

Friday, March 13, 2015

Kverkaskítur og kvef




Ég held að allir sem hafa eytt einhvernjum tíma á landinu í vetur viti að það hefur verið stormasamt. Ég hafði í rauninni ekki neina reynslu af þessum vetri sjálf. Hafði bara séð þess getið í fréttum að hinn og þessi stormurinn eða hitt og þetta hamfaraveðrið fari yfir Ísland. En veturkonungur hefur ákveðið að gefa mér nasaþefinn af öllum lægðunum sem gengið hafa yfir landið síðan í nóvember. Þvílíkt og annað eins skítaveður! Ef maður gerist svo djarfur að brydda upp á umræð um veðrið við veðurbarðann, vetursetu Íslending mun sá hinn sami eflaust hlæja stórkarlalega. Stoltið yfir óveðrinu er töluvert þótt þreytan yfir innisetunni sé mikil. Þegar maður aftur á móti skyggnist inn fyrir, inn í kjarnann á Íslendingnum sér maður örvæntinguna. Örvæntinguna yfir óveðrunum og maður gerir sér grein fyrir að stórkarlahláturinn er aðeins blekking. Því, viðurkennum það krakka, við erum öll leið á þessu og viljum fá vor og það er ekki töff og kúl að hafa alltaf skítaveður. 

Veturinn reyndi að villa um fyrir mér fyrstu dagana með björtu veðri og lygnu. Hann gat ekki haldið uppi blekkingunni nógu lengi. Þar að auki var mér nóg að hugsa um að flytja til Íslands og þá var ég komin með bullandi kvef, vott af eyrnabólgu og hósta. Strax úti í Noregi!

Hér sit ég því, með krónsískan kverkaskít eftir þrálátt kvef, og horfi útum gluggann úr gamalkunnu eldhúsi og bíð eftir næsta óveðri sem er búið að melda sig inn á morgun. Það ætlar að mæta í partíið með látum! Hnokkunum finnst þetta að vonum nokkuð spennandi. En þegar ekki er hægt að fara í sundferðir og bæjarferðir sér til dægrastyttinga verða einstaka dagar, þegar veðurskilyrði hefta ferðir okkar, þó ansi langir. Ungviðin verða svekkt yfir hamaganginum í veðrinu. Móðirin af afkvæmunum sammála.

Þegar hitaveitan brást eitt kvöldið í enn einum storminum var mér nóg boðið. Vindurinn buldi svoleiðis á gluggunum með ofsalátum og ég hugsaði með mér að það væri skammt í að gluggarnir myndu gefa sig undan þrýstinginum. Ég hafði komið mér fyrir í sófanum með teppi og hlustaði á ósköpin með örðu eyranu og með hinu reyndi ég að greina orðaskil í sjónvarpinu. Áður en ég vissi af var teppið komið upp fyrir haus, fæturnir voru komnir þétt upp að líkamanum og nefið var ískalt og jaðraði við að sultardropi héngi á því og ég tiraði öll og skalf. Til hvers að vera í íslensku húsi ef hitaveitan bregst?!


Já, það er ekki tekið út með sældinni að flytja til Íslands í byrjun mars. Þó syng ég hvern ættjarðarsönginn á eftir öðrum í huganum. Ísland er land þitt, Farsældar frón og til og með þjóðsönginn, sem ég kann ekki einu sinni almennilega. Þjóðrembingur? Held það bara.

Wednesday, March 4, 2015

Lendingin



Það er ekki fyrr en á úfnum degi sem þessum sem ég loksins lendi eftir hamagang síðustu vikna. Þó ómar ekkert annað lag í hausnum á mér en laglínan nú andar suðrið sæla vindum þíðum í flutningi karlakórs. Raunveruleikin er öllu kaldari, út um gluggann sér í hvítt, hvítt og einstaka laufblað á hraðferð. Ég velti fyrir mér hvernig í ósköpum þetta eina laufblað sé búið að ná að halda sér fast alla hina stormana, eða kemur það kannski frá Egilstöðum?

Síðustu vikurnar í Noregi voru ljúfsárar. Við komumst þó að því hvernig Norðmenn virkilega eru. Þetta er eitt besta fólk sem hægt er að eiga að vinum. Allir voru viljugir til að hjálpa, allir kvöddu okkur með tár á hvarmi, sendu okkur í burtu með gjöfum og heillaóskum um góða framtíð. Ég er svo yfirfull af þakklæti til þeirra allra. Til þeirra líka sem hjálpuðu við flutningana með bros á vör, fylltu gáminn af röggsemi þrátt fyrir mígandi rigningu. Til þeirra sem buðu okkur í kvöldmat þegar mest gekk á, eða ég var búin að pakka pottum og pönnum og ófær um að elda. Til þeirra sem buðu okkur íbúð til gistingar síðustu næturnar í votum Noregi. Til fyrrverandi samstarfsfólks sem kvaddi mig fimm sinnum. Til leikskólastarfsfólksins sem grét með hori síðasta daginn sem strákarnir komu í leikskólann. Ég grét meira. Þegar ég svo er komin heim til Íslands fæ ég sendan blómvönd frá samstarfsfólkinu. Alla leið til Íslands. Og ég hugsa með mér að í Noregi eigi ég vini fyrir lífstíð, því þannig eru Norðmenn. Og þið hin, þið vitið hver þið eruð: Takk fyrir okkur!

Það var erfitt að kveðja þetta fólk. Ég hef aldrei verið  mjög flink í að kveðja og þegar kveðja á fólk eins og þetta verður það enn erfiðara. Við förum þó heim með góðar minningar um árin í Noregi, um fólkið sem bíður okkar þegar við förum í heimsókn og um heitu sumrin þegar hægt var að synda í Brakvatni.


En lífið heldur áfram. Við mæðginin ætlum næsta mánuðinn að einbeita okkur að því að lenda báðum fótum í landi vinda og ísa. Eftir það hefst alvaran. Drengir fara á leikskóla og móðirin hefur vinnu á ný. Við bíðum svo eftir föðurnum með eftirvæntingu sem enn er staddur í blauta Noregi.

Tuesday, February 17, 2015

Með eftirsjá og tilhlökkun



Í Noregi líður senn að vori. Ég horfi á ísinn bráðna, hreinlega gufa upp, af gangstéttunum. Ég finn hitann frá sólinni og teygi snjóhvítt nefið í áttina að henni. Ég á nefnilega til að gleyma því að sólin geti vermt þegar það er hávetur og ekkert nema rakt myrkrið ríkir.

En við munum í þetta sinn ekki njóta hins norska, yljandi og milda vors. Og ég kemst ekki hjá því að hugsa með örlítilli eftirsjá til þess. Okkar vor verður á Íslandi. Íslandi þar sem maður horfir út um gluggann með örvæntingu og vonar að það hætti að snjóa/rigna/blása/vera kalt langt fram í júní. Þegar maður vonar að það verði sumar þetta sumarið. Þegar þú loksins leyfir þér að slaka á og það skellur svo á með hríð og haglélum. Þegar svo líður að hausti og þú horfir enn út um sama gluggann af því það er bara „gluggaveður“ og hugsar með sjálfri þér að þetta hafi nú verið stutt sumar og enginn varð hitinn og þú tendrar ljós til að lýsa upp myrkrið sem er þegar farið að gleypa sólina. Ég ætla svo ekki einu sinni að fara út í hvað mér finnst um efnahagslegt og pólitískt ástand landsins, sem er óneitanlega mikið verra en í Noregi.

Já, þetta höfum við valið okkur. Hér hrúgast upp kassar með hlutum sem eru svo sjaldan notaðir að þeir voru hreinlega fallnir í gleymsku. En eru þó svo nauðsynlegir þegar allt kemur til alls. Allt skal fylgja okkur heim, þó að húsmóðirin vilji helst henda öllu draslinu. Þrír herramenn eru ekki á sama máli. Hér stressum við okkur yfir því hvenær gámurinn komi til að fylla og hvort við náum að fylla hann á réttum tíma. Við hugsum með söknuði til alls fólksins sem við höfum kynnst í nýju landi. Og við grátum sumur sem við munum ekki lifa í Noregi.

Við erum á leiðinni heim. Og þrátt fyrir að sjá eftir sumri og nýjum vinum þá hlakkar okkur til. Ég hlakka til að stinga mér í heita laug á köldum rigningar degi og hlæja að veðurguðunum. Ég hlakka til að eignast nýja vini á nýjum/gömlum stað. Okkur hlakkar til að sameinast fjölskyldu á ný og búa til sameiginlegar minningar með fólkinu okkar. Ég hlakka til að tala hið ástkæra og ylhýra á ný.


Ég hlakka til að takast á við framtíðina þó ég sjái líka eftir því sem ég mun missa héðan.