Ég held að allir
sem hafa eytt einhvernjum tíma á landinu í vetur viti að það hefur verið
stormasamt. Ég hafði í rauninni ekki neina reynslu af þessum vetri sjálf. Hafði
bara séð þess getið í fréttum að hinn og þessi stormurinn eða hitt og þetta hamfaraveðrið fari yfir Ísland. En
veturkonungur hefur ákveðið að gefa mér nasaþefinn af öllum lægðunum sem gengið
hafa yfir landið síðan í nóvember. Þvílíkt og annað eins skítaveður! Ef maður gerist svo djarfur að brydda upp á umræð um veðrið við veðurbarðann, vetursetu Íslending mun sá hinn sami eflaust hlæja stórkarlalega. Stoltið yfir óveðrinu er töluvert þótt þreytan yfir innisetunni sé mikil. Þegar maður aftur á móti skyggnist inn fyrir, inn í kjarnann á Íslendingnum sér maður örvæntinguna. Örvæntinguna yfir óveðrunum og maður gerir sér grein fyrir að stórkarlahláturinn er aðeins blekking. Því, viðurkennum það krakka, við erum öll leið á þessu og viljum fá vor og það er ekki töff og kúl að hafa alltaf skítaveður.
Veturinn reyndi að villa um fyrir mér fyrstu dagana með björtu veðri og lygnu. Hann gat ekki haldið uppi blekkingunni nógu lengi. Þar að auki var mér nóg að hugsa um að flytja til Íslands og þá var ég komin með bullandi kvef, vott af eyrnabólgu og hósta. Strax úti í Noregi!
Veturinn reyndi að villa um fyrir mér fyrstu dagana með björtu veðri og lygnu. Hann gat ekki haldið uppi blekkingunni nógu lengi. Þar að auki var mér nóg að hugsa um að flytja til Íslands og þá var ég komin með bullandi kvef, vott af eyrnabólgu og hósta. Strax úti í Noregi!
Hér sit ég því,
með krónsískan kverkaskít eftir þrálátt kvef, og horfi útum gluggann úr
gamalkunnu eldhúsi og bíð eftir næsta óveðri sem er búið að melda sig inn á morgun.
Það ætlar að mæta í partíið með látum! Hnokkunum finnst þetta að vonum nokkuð spennandi. En þegar ekki er hægt að fara í sundferðir og bæjarferðir sér til dægrastyttinga
verða einstaka dagar, þegar veðurskilyrði hefta ferðir okkar, þó ansi langir.
Ungviðin verða svekkt yfir hamaganginum í veðrinu. Móðirin af afkvæmunum
sammála.
Þegar hitaveitan
brást eitt kvöldið í enn einum storminum var mér nóg boðið. Vindurinn buldi
svoleiðis á gluggunum með ofsalátum og ég hugsaði með mér að það væri skammt í að
gluggarnir myndu gefa sig undan þrýstinginum. Ég hafði komið mér fyrir í
sófanum með teppi og hlustaði á ósköpin með örðu eyranu og með hinu reyndi ég að greina orðaskil í sjónvarpinu. Áður en ég vissi af var teppið komið upp fyrir haus,
fæturnir voru komnir þétt upp að líkamanum og nefið var ískalt og jaðraði við
að sultardropi héngi á því og ég tiraði öll og skalf. Til hvers að vera í íslensku húsi ef hitaveitan
bregst?!
Já, það er ekki
tekið út með sældinni að flytja til Íslands í byrjun mars. Þó syng ég hvern
ættjarðarsönginn á eftir öðrum í huganum. Ísland
er land þitt, Farsældar frón og til og með þjóðsönginn, sem ég kann ekki
einu sinni almennilega. Þjóðrembingur? Held það bara.
No comments:
Post a Comment