Friday, June 22, 2012

Blómvöndurinn


Ég og strákarnir vorum að labba heim úr leikskólanum um daginn. Theodóri fannst tímabært að tína handa mér blóm. Hann sleit upp nokkra hálfdauða fífla.

Þrátt fyrir að þeir litu ekki svo vel út þá ákvað ég samt að gera tilraun. Ég setti þessi hálfdauðu hræ í vatn og viti menn. Hræin urðu að fallegum biðukollum. 




No comments:

Post a Comment