Þá erum við loksins komin til Noregs. Höfum komið okkur fyrir í fínustu íbúð með stórkostlegu útsýni. Okkur líður öllum alveg þokkalega vel hérna. Það eru nokkrar gönguleiðir hér í kringum okkur. Við erum úti í eyju sem heitir Osteröy og er rétt fyrir utan Bergen. Frábær staður til að vera á! Úti í sveit en nálægt stórborg.
En þar sem við erum ný á staðnum þá er maður alltaf að sjá nýja hluti og það er alveg ótrúlegt hvað maður sér mikið. Það var alveg nauðsynlegt að hafa myndavélina með í alla labbitúra.
Þegar við komum hingað fyrst var alveg hrikalegt syndaflóð í um viku. Þegar því stytti upp tók við endalaus þoka. Það var alveg ótrúlega fallegt, ef maður pældi í því, en það var líka ansi drungalegt. Maður sá ekki til sólar nema rétt í gegnum þokuna.
Ég var farin að kalla trén hryllingsmyndatré og á tímabili velti ég fyrir mér hvað í ósköpunum ég væri eiginlega að gera á þessum stað. Þetta væri klárlega byrjunin á einhverri hryllingsmynd.
En þokunni létti eina nóttina og við tók gífurlegur kuldi. Það fór mest niður í -15°C. Allt varð hvítt, ekki af snjó heldur hrími. Kuldinn er rosalega lúmskur. Hér vantar allan vind svo að maður tekur ekki eftir kuldanum fyrr en annað eyrað dettur af manni eða maður fer að haltra vegna kuls á litlutá. Við lifðum það af.
Við létum okkur hafa það að paufast að húsi Ole Bull einn daginn. Okkur varð mjög kalt á leiðnni, sultardroparnir breyttust í grýlukerti, en það var vel þess virði.
Nú er næsta skref, þar sem maður er búinn að kynnast umhverfinu að einhverju leiti, að kynnast fólki. Norðmenn eru mjög vinalegir, sem betur fer, og ég hef fulla trú á að okkur verði tekið vel. Það verður gaman að geta farið heimsóknir og fá heimsóknir.

Ótrúlegt landslag! Hlakka til að koma í heimsókn :D
ReplyDelete