Hve ólíkir geta bræður verið? Ég er hægt og hægt að finna það út. Þegar sá litli fæddist þá var ég svolítið hissa á því að hann skyldi ekki líta alveg eins út og bróðir hans. Það var samt ekki bara í útliti sem hann var ólíkur bróður sínum. Það er hægt og hægt að koma í ljós að sá litli verður allt annar einstaklingur.
Sá stóri er blíður, rólegur og áhggjufullur. Frá því hann sagði fyrsta orðið hefur hann ekki hætt að tala. Hann er alltaf talandi. Hann segir mér sögur, syngur og spyr.
Hann gat setið kyrr í fanginu á mér og skoðað bók þegar hann var sjö mánaða.
Hann er forvitinn. Hins vegar hefur hann alltaf hlýtt boðum og bönnum. Það er hægt að segja honum að bíða og hann bíður. Ansi hentugt.
Honum finnst best að leika með hluti sem ekki eru leikföng. Hann vill sitt elskaða sippuband og hann vill hluti sem við eigum.
Þetta á kannski allt eftir að breytast. Hann er nú bara þriggja og hálfs árs.
Sá litli aftur á móti er ekkert líkur bróður sínum. Hann er stöðugt á hreyfingu. Hann á auðvelt með að leika sér sjálfur og í staðinn fyrir að leika með hluti sem ekki eru leikföng þá notar hann leikföngin. Sum leikföng eru nú notuð í fyrsta skipti, þrátt fyrir að hafa verið til á heimilinu í þrjú ár.
Hann er nú farinn að skríða um alla íbúð með bíl í hendinni. Það finnst honum gaman.
Hann hefur frá fæðingu verið hávær, af ýmsum ástæðum. En hann lætur líka vita þegar hann er ósáttur, eða sáttur, eða... ja bara hvenær sem er. Hann lætur vita af sér.
Hann er ótrúlega skemmtilegur, eins og bróðir hans. Það er gaman að fylgjast með því hvernig hann verður meiri og meiri mannsekja með hverjum deginum.
Þeir hafa nú eignast flottan lítinn frænda á Íslandi. Það verður gaman að sjá hvernig hann verður í framtíðinni. Verður hann fjörugur eins og sá lítli eða rólyndur eins og sá stóri? Eða verður hann bara eins og hann á að vera og ekkert líkur frændum sínum? Munu þessir þrír villingar leika sér saman? Framtíðin er spennandi. Ég hlakka til að hitta litla frændann. Get eiginlega ekki beðið.
Æðislegar myndir af þeim - lýsir þeim vel hvað þeir eru ólíkir :D
ReplyDeleteJá ég upplifi það sama með Amalie og Isolde hehe :) Skil þig mjög vel. Þær eru mjög ólíkar líka í útliti og hegðun. Þær eru þó aðeins farnar að líkast hvorri annari núna þegar að þær eru orðnar eldri.
ReplyDeleteRosa flottar myndir og við verðum að sjá hvort að þau geti ekki öll leikið saman um jólin á Kalastöðum ;) :D
Elska bloggin þín! Hlakka til að sjá fleiri myndir og heyra fleiri fréttir:) knús
ReplyDelete