Monday, February 11, 2013

Sædýrasafnið



Sunnudagur fyrir sædýrasafn. Í Bergen er mjög flott sædýrasafn. Til að breyta til og komast út úr skipulagsbrjálæði, hálfkláruðum skápum, ósamanbrotum þvotti en annars nokkuð kósí íbúð fórum við á þetta margfræga safn. Það var stórgaman hjá okkur. Sáum mörgæsir, seli, sæljón, tonn af fiskum, skjaldbökur, annað fólk, hákarla, slöngur, krókódíla og ég veit ekki hvað meira. 

Það skemmdi svo ekki fyrir að sólin skein, það var ekki frystiafþérputtana kalt og Theodór labbaði allann tímann sjálfur. Alveg frá bílastæðahúsinu sem var hálftíma labb og til baka líka, fyrir utan labbið inni á safninu. Við vorum svo stolt af litla manninum.



Feðgarinir skoðuðu mörgæsirnar. Þær voru að fá að borða.



Vargur og Þvargur voru sáttir í sólinni. 
Theodór vildi samt helst af öllu sjá hákarlana. Var ekkert of spenntur
 fyrir krúttlegum mörgæsum.



Við kíktum samt fyrst á sæljónin. Þau syntu af og til framhjá.



Nikulás sýndi mikinn áhuga þegar kom að því að horfa inn í búrin. Theodór ekki síður.
Selirnir horfðu til baka.



Fullt af fiskum.

Allir voru kúguppgefnir eftir ferðina. Vel heppnuð ferð og verður endurtekið. 

1 comment:

  1. Snilld. Þarf að skoða þetta - eins og allt annað þegar ég kem í vettvangskönnun.
    JHH

    ReplyDelete