Vinsælasta leikfangið á heimilinu er sippuband. Það er til nóg af öðru dóti, bara nefndu það og við eigum það örugglega. Flott þríhjól, grafa, kassi af kubbum, óteljandi bækur, bílar, dúkkur, eldavél, straujárn, heill kassi af eldhúsdóti, tjald, tjaldgöng, sparkbíll og svo mætti lengi telja.
Nei sá stóri vill bara leika með sippuband. Sippuband sem hann keypti sjálfur fyrir ári á tombólu fyrir utan Hólagarð. Hann rétti ungri stúlku 100 krónur og fékk að launum að velja sér eitt leikfang. Gamalt slitið sippuband. Bandið góða er hins vegar ekki notað til að hoppa með. Ó nei. Það er allt annað.
Stundum er það vantsslanga sem tengist við dælu (sófann) og mér ber að æpa og skrækja þegar hann sprautar á mig köldu vatni. Stundum er það rafmagnssnúra sem tengist við tölvuna hans (leikfanga eldavélina) og svo situr hann löngum tímum fyrir framan tölvuna og spilar tölvuleik sem er bara til í ímynunaraflinu hans. Stundum getur rafmagnssnúran sett rafmagn í sjóvarpið hans (lok af kassa sem er stillt upp við vegg). Stundum tengist snúran við flókinn mótor sem virkar á mjög sérhæfðan hátt. Það er ómögulegt fyrir minn heila að skilja það. Það er eitthvað sem bara svona litlir heilar skilja. Rafmagnssnúran hleður rafmagnsbílinn hans (sparkbíllinn). Stundum er bandið dýr. Það er ótrúlegt hvað honum dettur í hug. En tengingar eru efst í huga hans. Stundum eru tengingarnar hættulega og þá ber öllum að varast þær. Verra er ef þær eru í gangveginum og maður þarf að klofa yfir þær. Þess vegna er sippuband uppáhaldsleikfangið hans. Það er hægt að gera allt með sippubandi.
Já, það er gott að vera með ímyndunarafl. Þann stóra vantar það svo sannarlega ekki!
Jafnast ekkert á við ímyndunaraflið ;)
ReplyDeleteMikið er dásamlegt að lesa um barn sem hefur virkt og ríkt ímyndunarafl. Þetta er alger snilldardrengur og það eru bara ekkert svo rosalega mörg börn sem eru svona nú orðið. Halda þessu við!
ReplyDeleteÞað er náttúrlega snilld að hafa svona góða græju sem hægt er að nota í öll þessi fjölbreytilegu verk. Svo er líka ekki minni snilld að mamman skilur hvað græjan er mikil snilld!
ReplyDelete