Við héldum upp á afmæli í dag. Sá yngsti á heimilinu varð eins árs.
Mér finnst þetta alveg stórkostlegur áfangi hjá honum, þótt hann hafi ekki gert mikið annað en að vaxa og eldast eins og hann á að gera.
Við fengum besta veður sem hefur verið í marga daga. Sól og tíu stiga hiti. Ég vil meina að þetta hafi verið svo vegna afmælisdagsins. Aðrir segja að þetta sé allt saman ein tilviljun.
Gleði og skemmtun var allsráðandi allan daginn. Ungherra afmælisbarn stóð sig vel í öllu sem gert var. Hann hegðaði sér vel í Bergenferðinni, hann lék sér fallega í afmælisveislunni og hann lét sig hafa það að sitja í vagni í einn og hálfan tíma eftir veisluna.
Ungherrann var ánægður með ávaxtasalatið. Perur eru í miklu uppáhaldi hjá honum.
Afmæliskakan var glúteinfrí, eggjalaus, mjólkurlaus og sojalaus. Geri aðrir betur. Ég þakka Toro fyrir stuðninginn. Hún hefði getað verið betri en var þrátt fyrir það alveg þokkaleg.
Nikulási fannst hún mjög góð og skúffaði henni í sig.
Hann varð reiður þegar hann fékk ekki meira.
Þegar pakkarnir voru opnaðir fékk ungherra afmælisbarn dyggan stuðning frá bróður sínum, frændsystkinum og öðrum gestu. Hann var mjög ánægður með uppskeruna.
No comments:
Post a Comment